17.03.2026
Nýtt verkefni komið í vinnslu
Nýlega kom ungt fólk til okkar sem hafði áhuga á að skoða möguleikann á að byggja lítið íbúðarhús í fallegri sveit.
Eftir stuttan fund fæddist þessi hugmynd. Húsið er byggt á súlum, sem gerir mögulegt að færa það til ef þörf krefur.
Það er hannað með algildri hönnun og getur hentað bæði sem íbúðarhús, í ferðaþjónustu eða sem sumarhús. Áætlað er að grind hússins komi tilsniðin frá sögunarmyllu í Noregi.
Húsið er byggt á súlum, sem gerir mögulegt að færa það til ef þörf krefur. Það er hannað með algildri hönnun og getur hentað bæði sem íbúðarhús, í ferðaþjónustu eða sem sumarhús.
Stærð hússins er 73 m² og það inniheldur tvö nokkuð rúmgóð herbergi. Húsið verður hitað upp með gólfhita.
Að utan verður húsið klætt með standandi báruáli. Gluggar verða áltrégluggar og á þakið kemur svart báruál.
Loft verða upptekin í öllu húsinu, en salerni og eldhús eru hugsuð sem „kjarni“ eða eins konar skápur í rýminu.
Loftið er því niðurtekið yfir salerninu – sem sést betur á sniðmyndinni.
Fleiri myndir á Facebook.
11.03.2026
Margt að gerast á Árskógsströnd
Splunkunýr aðili í framleiðslu forsmíðaðra húsa. Við félagar fengum í sumar það verkefni að hanna stóra skemmu með stærðarinnar hurð á að Stærri Árskógi á Árskógsströnd í Dalvíkurbyggð.
Í framhaldi fengum við svo það verkefni að hjálpa þeim af stað með hönnun á forsmíðuðum einingarhúsum. Núna er fyrsta húsið á fullu í smíði og við kíkkuðum á þá félaga á Stærri Árskógi í dag.
Þetta er spennandi verkefni og við trúum að þarna séu góðir hlutir að gerast. Húsin geta verið alveg upp í 140m² að stærð og verða flutt hvert á land sem er.
Sjón er sögu ríkari. Fyrsta húsið er 49m² og er selt.
Fleiri myndir á Facebook.
07.03.2026
Einbýlishús við Hagaskóga í Hörgársveit
Núna seinustu vikur höfum við unnið að einbýlishúsi í Hagahverfi í Hörgársveit. Þar á að byggja tveggja hæða timburhús með bílskúr.
Húsið kemur tilsniðið frá sögunarmyllu í Noregi og verður því allt tilsniðið og númerað upp eins við höfum svo góða reynslu af.
Gólf verða þó steypt á milli hæða. Núna erum við að vinna að burðarþoli og lögnum en aðaluppdrættir af þessu húsi eru klárir.
Eins og oft hjá okkur þá eru allir gluggar vel stórir og margir gólfsíðir gluggar. Bílskúrsþakið myndar svo svalir fyrir efri hæðina.
Það eru 71m² svalir á þessu húsi sem verða með snjóbræðslu og ættu að nýtast vel allt árið. Þannig að húsið mun stækka á góðviðrisdögum út á svalirnar.
Á svölunum verður pottur og hægt að borða morgunmatinn úti í morgunsólinni.
Fleiri myndir á Facebook.